Breyting á lögum við hleðslu rafbíla - Fjölbýlishús

Nýlega var samþykkt breyting á lögum um fjöleignarhús. Frumvarpið sem búið er að samþykkja opnar enn frekar á möguleika þess að koma upp hleðslustöðvum í fjöleignarhúsum og þannig gera neytendum auðveldara fyrir að skipta yfir á rafbil.

Eigendur íbúða munu ekki þurfa samþykki annarra íbúða til að koma upp hleðslustöð nema það leiði til að meiri en helmingur bílastæða verði eingöngu til notkunar fyrir rafbíla.

Jafnframt skal hleðslubúnaður og annar tengibúnaður uppfylla allar þær kröfur sem til hans eru gerðar og er jafnframt krafa að löggiltur rafverktaki annist uppsetningu á hleðslubúnaðnum.

Gert er ráð fyrir að eigandi beri kostnað af uppsetningu hleðslubúnaðar við fjölbýlishús, sé um séreign hans að ræða. Þar sem um sameign er að ræða er hins vegar gert ráð fyrir sameiginlegum kostnaði allra þeirra eigenda sem hafa heimild til afnota af viðkomandi bílastæði, hvort sem bílastæðið er áfram nýtt sem almennt bílastæði eða eingöngu til hleðslu rafbíla. Minni hluti eigenda getur í undantekningartilfellum krafist þess að framkvæmdum verði frestað í allt að tvö ár á meðan safnað verði fyrir þeim í sérstakan framkvæmdasjóð. Þá hafa húsfélög heimild til að krefjast hóflegrar mánaðarlegrar þóknunar frá þeim eigendum sem nýta hleðslubúnað fyrir rafbíla.

Haft er eftir Ásmundi Einari Daðasyni, félags-og barnamálaráðherra á vef stjórnarráðsins

þær breytingar sem við gerum á lögunum nú gerir það einfaldara fyrir íbúa fjölbýlishúsa að setja upp hleðslustöðvar við sín eigin bílastæði. Við erum á miðri leið inn í orkuskiptin og þessi breyting er ein af mörgum vörðum á þeirri leið.